Vísitala byggingarkostnaðar hækkar um 0,6% á milli mánaða
Þessi grein er frá 2019. Nýjustu tölur um markaðinn eru alltaf á Markaðurinn.

Upplýsingar frá Hagstofu Íslands - hagstofa.is

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október 2018 er 141,0 stig (desember 2009=100) og hækkar um 0,6 % frá fyrri mánuði. Innflutt efni hækkaði um 1,4% (áhrif á vísitölu 0,3%). Innlent efni hækkaði um 0,7% (áhrif á vísitölu 0,3%). Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,8%. Vísitalan gildir í nóvember 2018.
Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2017–2018
